Fotbolti.net
20.08.26 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson

Man City eyrnamerkir arftaka Savinho en einn hængur er á

Allan í leik með Palmeiras

Allan í leik með Palmeiras

Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur mikinn áhuga á að fá brasilíska leikmanninn Allan frá Palmeiras í heimalandinu, en óvíst er hvort félagið nái að sannfæra félagið um að selja fyrir gluggalok. Sky og David Ornstein segja frá.
City er að selja Savinho til Tottenham og hefur eyrnamerkt Allan hjá Palmeiras sem mögulegan arftaka hans.

Allan er 22 ára gamall örvfættur vængmaður sem leikur helst hægra megin, líkt og Savinho.

Hann er ekki eini leikmaðurinn á óskalista City en félagið er sagt vera mjög hrifið af honum.

Það er þó einn stór hængur á. Sky Sports segir Palmeiras alls ekki vilja selja Allan í þessum glugga. Félagið er opið fyrir sölu eftir áramót en vilji City fá hann strax þarf það að virkja riftunarákvæði upp á 85 milljónir punda.

Palmeiras er á toppi brasilísku deildarinnar og enn í baráttunni í bæði bikarkeppninni og Copa Libertadores, Meistaradeild Suður-Ameríku. Félagið vill því ekki missa einn af sínum bestu leikmönnum áður en tímabilinu lýkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.