Fotbolti.net
20.09.12 - 12:56
Magnús Már Einarsson

Gunnar Borgþórs ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss (Staðfest)

Gunnar Borgþórs ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Gunnar Rafn Borgþórsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.
Gunnar hætti í gær sem þjálfari Vals og hann hefur nú tekið við liði Selfyssinga sem endaði í 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Fyrr í vikunni ákváðu Selfyssingar að framlengja ekki samninginn við Björn Kristinn Björnsson sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár og nú hefur Gunnar tekið við liðinu en hann býr sjálfur á Selfossi.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gunnar kemur nálægt þjálfun á Selfossi, en hann var í þjálfarteymi meistaraflokks karla árið 2010 og hafði yfirumsjón með Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi á sama tíma áður en hann tók við kvennaliði Vals.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.