20.09.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson
Robert Earnshaw til Ísrael (Staðfest)

Earnshaw og Aron Einar Gunnarsson.

Mynd: Twitter

Earnshaw og Aron Einar Gunnarsson.

Mynd: Twitter
Robert Earnshaw, framherji Cardiff, hefur gengið til liðs við Maccabi Tel Aviv á láni út tímabilið.
Earnshaw hefur ekki verið inni í myndinni hjá Cardiff eftir að Heiðar Helguson og Craig Bellamy komu til félagsins í sumar.

Hinn 31 árs gamli leikmaður mun nú leika út tímabilið í Ísrael.
,,Ég er ánægður með þessa viðbót við hópinn. Óvæntir hlutir geta átt sér stað á síðasta degi félagaskiptagluggans og þetta er dæmi um það,\" sagði Jordi Cruyff yfirmaður íþróttamála hjá Maccabi.
Earnshaw hefur leikið í fjórum efstu deildunum á Englandi og afrekað að skora þrennu í öllum þeirra.

Heimild: Sky