20.09.12 - 23:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Heskey búinn að finna sér nýtt lið - Farinn til Ástralíu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Emile Heskey er búinn að finna sér nýtt lið en hann hefur skrifað undir eins árs samning við Newcastle Jets í Ástralíu.
Þessi 34 ára sóknarmaður hefur verið án félags eftir að samningur hans hjá Aston Villa rann út í lok síðustu leiktíðar.

Heskey spilaði 516 leiki í ensku úrvalsdeildinni með fimm mismunandi liðum og skoraði samtlas 110 mörk. Að auki lék hann 62 leiki með enska landsliðinu og skoraði í þeim sjö mörk.
Þjálfari Newcastle Jets, Gary van Egmond, er hæstánægður að hafa náð að landa þessum markreynda sóknarmanni.
,,Emile er einhver sem býr yfir ótrúlegri reynslu, hann mun hjálpa okkur mikið. Hann er akkurat það sem okkur vantaði,\" sagði Gary van Egmond.