Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
   fös 20. september 2019 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
England: Nýting Bournemouth gerði gæfumuninn
Southampton 1 - 2 Bournemouth
0-1 Nathan Ake ('10)
0-2 Harry Wilson ('35)
1-2 James Ward-Prowse ('53, víti)

Southampton tók á móti Bournemouth í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Nathan Ake kom gestunum yfir með skalla eftir hornspyrnu og tvöfaldaði Harry Wilson forystuna fyrir leikhlé.

Wilson hafði skorað nokkru áður en markið dæmt af, með notkun myndbandsdómgæslu, vegna rangstöðu.

James Ward-Prowse minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og sóttu heimamenn stíft en varnarmúr Bournemouth hélt út.

Það var alveg í lokin sem gestirnir náðu að innsigla sigurinn með skrautlegu marki. Langur bolti barst fram frá markverðinum og var einhver misskilningur á milli Angus Gunn, í marki Southampton, og Jannik Vestergaard.

Þeir rákust á hvorn annan og misstu af boltanum. Callum Wilson þakkaði fyrir sig og skoraði í autt mark.

Bournemouth er komið upp í tíu stig með sigrinum. Southampton er með sjö stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 15 10 1 4 35 16 +19 31
3 Aston Villa 15 9 3 3 22 15 +7 30
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 15 7 5 3 20 12 +8 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
8 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
9 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
10 Sunderland 15 6 5 4 18 17 +1 23
11 Tottenham 15 6 4 5 25 18 +7 22
12 Newcastle 15 6 4 5 21 19 +2 22
13 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 15 6 1 8 21 24 -3 19
16 Leeds 15 4 3 8 19 29 -10 15
17 Nott. Forest 15 4 3 8 14 25 -11 15
18 West Ham 15 3 4 8 17 29 -12 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner