Fotbolti.net
20.09.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Mount gæti náð Liverpool leiknum þrátt fyrir ljóta tæklingu

Mount gæti náð Liverpool leiknum þrátt fyrir ljóta tæklingu
Canon

Mynd: Getty Images

Frank Lampard, stjóri Chelsea, vonast til að miðjumaðurinn Mason Mount verði leikfær í stórleiknum gegn Liverpool á sunnudag.

Mount varð að fara af velli snemma leiks gegn Valencia í vikunni vegna meiðsla. Mount meiddist eftir ljóta tæklingu frá Francis Coquelin.

<i>„Hann á möguleika. Við sáum mynd af tæklingunni og þetta leit illa út,"</I> sagði Lampard í dag.
„Við erum að reyna að fá hann á hreyfingu í dag. Þetta er eitthvað sem ég verð að ákveða síðar."

Hér að neðan má sjá mynd af tæklingunni í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.