Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 20. október 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Matip æfði ekki - Fabinho byrjar líklega í miðverði
Joel Matip æfði ekki með Liverpool í dag fyrir leikinn gegn Ajax í Meistaradeildinni annað kvöld.

Matip meiddist lítillega í leiknum gegn Everton um helgina og útlit er fyrir að hann missi af leiknum á morgun.

Virgil Van Dijk er einnig fjarverandi og því er líklegt að miðjumaðurinn Fabinho verði með Joe Gomez í hjarta varnarinnar.

Miðverðirnir Nat Phillips og Rhys Williams ferðast einnig með Liverpool í leikinn í Hollandi.

Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara meiddist einnig gegn Everton og hann æfði heldur ekki með Liverpool í dag.
Athugasemdir