Fotbolti.net
20.11.19 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Viðræður um Mourinho verið í gangi í þrjár vikur

Mættur aftur í enska boltann.

Mættur aftur í enska boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports segir að Tottenham hafi byrjað að skoða möguleikann á að fá Jose Mourinho í stjórastólinn fyrir meira en þremur vikum.

Umboðsmaðurinn Pini Zahavi er á bakvið samninginn en hann hefur fundað reglulega með Tottenham undanfarnar vikur og sannfært félagið um að Mourinho sé rétti maðurinn til að taka við af Mauricio Pochettino. Hinn 76 ára gamli Zahavi sannfærði Chelsea einnig um að ráða Mourinho árið 2004.

Mourinho var í morgun ráðinn stjóri Tottenham en Zahavi byrjaði að funda með Daniel Levy, formanni Tottenham, í kjölfarið á 1-1 jafntefli gegn Watford fyrir meira en þremur vikum.
Undanfarna daga hefur Mourinho síðan sjálfur fundað með Levy í London. Mourinho ræddi um leikstílinn sem hann ætlar að spila, hópinn hjá Tottenham og möguleika á að fá pening til leikmannakaupa.

Samkvæmt heimildum Sky Sports telur Mourinho að hópurinn sé sterkur og eigi að geta gert mun betur en hingað til á tímabilinu. Hann gæti fengið pening til leikmannakaupa ef styrkja þarf hópinn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.