Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. nóvember 2020 09:36
Magnús Már Einarsson
Man Utd vill Camavinga - James til Everton?
Powerade
Daniel James er orðaður við Everton.
Daniel James er orðaður við Everton.
Mynd: Getty Images
Messi er áfram orðaður við Manchester City.
Messi er áfram orðaður við Manchester City.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin eru með ýmsar kjaftasögur í dag. Kíkjum á þær.



Manchester City ætlar að fá Lionel Messi (33) frá Barcelona næsta sumar eftir að Pep Guardiola skrifaði undir nýjan samning. (Mirror)

Manchester United ætlar að berjast við PSG og Real Madrid um Eduardo Camavinga (18) miðjumann Rennes. (Marca)

Virgil van Dijk (29) varnarmaður Liverpool er byrjaður á léttum æfingum eftir aðgerð á hné. Liverpool vonast til að Van Dijk nái lokakafla tímabilsins. (Mail)

Real Madrid og Inter vilja fá Gini Wijnaldum (30) miðjumann Liverpool. (Mundo Deportivo)

Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni vilja fá Sergio Ramos (34) varnarmann Real Madrid ef hann framlengir ekki samning sinn við spænska félagið. (90 min)

Real Madrid ætlar að fá David Alaba (28) varnarmann Bayern Munchen, sama hvort Ramos fer eða ekki. (Marca)

Everton er að íhuga að fá Daniel James (23) frá Manchester United í janúar. (Football Insider)

Olivier Giroud (34) er tilbúinn að fara frá Chelsea í janúar til að fá meiri spiltíma fyrir EM næsta sumar. (Guardian)

Newcastle er tilbúið að hlusta á tilboð í miðjumanninn Miguel Almiron (26). (90min)

Sami Khedira (33) miðjumaður Juventus vill fara í ensku úrvalsdeildina. Hann gæti gengið til liðs við Everton eða Manchester United. (Sun)

Nígeríski milljarðamæringurinn Orji Kalu vill kaupa 35% hlut í Arsenal og að félagið nái aftur í titla. (Mirror)

Erling Braut Haaland (20) framherji Borussia Dortmund er ekki að hugsa um að fara frá félaginu að sögn föður hans Alf-Inge Haaland. (Goal)

David Luiz (33) sló liðsfélaga sinn Dani Ceballaos (24) í nefið á æfingu hjá Arsenal í síðustu viku. (The Athletic)
Athugasemdir
banner
banner
banner