Union Berlin 2 - 0 Hertha
1-0 Taiwo Awoniyi ('8 )
2-0 Christopher Trimmel ('30 )
1-0 Taiwo Awoniyi ('8 )
2-0 Christopher Trimmel ('30 )
Union vann borgarslaginn um Berlín er liðið vann Herthu, 2-0, í þýsku deildinni í kvöld.
Taiwo Awoniyi kom Union yfir strax á 8. mínútu leiksins og var þetta áttunda mark hans í deildinni á þessari leiktíð.
Christopher Trimmel gerði annað mark Union á 30. mínútu leiksins og Union með góða forystu. Peter Petarik taldi sig hafa skorað fyrir Herthu undir lok fyrri hálfleiks en það var dæmt af eftir nánari skoðun hjá VAR.
Lokatölur 2-0 fyrir Union sem er í 5. sæti með 20 stig en Hertha í 13. sæti með 13 stig.
Athugasemdir