20.12.17 - 15:59
Magnús Már Einarsson
Birkir Már í Val (Staðfest)

Frá undirskrift í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirskrift í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson hefur gengið til liðs við Val en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið á fréttamannafundi nú rétt í þessu.
„Ég held að félagið sé mjög ánægt með þessa jólagjöf sem við erum að færa því,\" sagði Börkur Edvardsson formaður meistaraflokksráðs Vals þegar Birkir var kynntur til sögunnar.
„Við Valsmenn ætlum okkur að vera á toppnum um ókomin ár. Þetta er enn einn liðurinn í því.\"
Hinn 33 ára gamli Birkir yfirgaf sænska félagið Hammarby á dögunum en samningur hans þar var að renna út.

Birkir er nú mættur aftur í uppeldisfélag sitt Val en hann lék með meistaraflokki félagsins frá 2003 til 2008 áður en hann gekk til liðs við Brann í Noregi.
Birkir er fastamaður í íslenska landsliðinu en hann á 76 landsleiki að baki og verður í eldlínunni á HM í Rússlandi næsta sumar.
Íslandsmeistarar Vals hafa nú bætt við sig fjórum nýjum leikmönnum frá því á síðasta tímabili.
Viðtal við Birki birtist á Fótbolta.net innan tíðar.
Komnir:
Birkir Már Sævarsson frá Hammarby
Kristinn Freyr Sigurðsson frá GIF Sundsvall
Ívar Örn Jónsson frá Víkingi R.
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Farnir:
Haukur Ásberg Hilmarsson
Nicolas Bogild