21.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Ferdinand til West Ham (Staðfest)
Les Ferdinand er genginn í West Ham. Tottenham gaf West Ham leyfi í gærkvöld til að hefja viðræður við Ferdinand og ný rétt í þessu hafði kappinn skrifað undir samning við félagið eftir að hafa gengist undir læknisskoðun. Hann var mættur á æfingu hjá félaginu nú í morgun og verður í liðinu sem mætir Charlton á the Valley á morgun.
