Sjáðu atvikin: Fabinho og Barnes lenti saman - Origi klúðraði

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool og Burnley eru að etja kappi þessa stundina í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Það eru tæplega 20 mínútur eftir af venjulegum leiktíma og er staðan enn markalaus.
Fyrri hálfleikur bauð ekki uppá mikla skemmtun þar sem tilraunir Liverpool til að komast í gegn gengu ekki sérlega vel, þar til Divock Origi slapp í gegn eftir hrikaleg varnarmistök Ben Mee. Origi klúðraði þó dauðafærinu með því að skjóta í slána.
Skömmu síðar hefði brasilíski varnartengiliðurinn Fabinho getað fokið af velli með rautt spjald eftir samskipti sín við Ashley Barnes, sóknarmann Burnley.
Fabinho sparkaði í Barnes og fékk gult spjald að launum.
Sjáðu sláarskot Origi.
Sjáðu brot Fabinho
Sjáðu þegar dómarinn lyftir gula spjaldinu