Ari Sigurpálsson er á láni hjá Bologna frá HK. Ari fór til Ítalíu síðasta haust og rennur lánssamningurinn út í sumar.
Fótbolti.net hafði samband við Ara og bað fréttaritari hann um að segja frá hinni hlið sinni.
Fótbolti.net hafði samband við Ara og bað fréttaritari hann um að segja frá hinni hlið sinni.
Fullt nafn: Ari Sigurpálsson
Gælunafn: Bobby eða Spalsson.
Aldur: 17
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Desember 2018 Í Bose-mótinu. Fyrsti leikur í pepsi kom í ágúst í fyrra gegn Fylki.
Uppáhalds drykkur: Drekk aðallega vatn en Fanta Lemon er öflugt.
Uppáhalds matsölustaður: Pure Deli og Víking Kebab Engihjalla.
Hvernig bíl áttu: Því miður ekki kominn með bílprófið
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Vaktirnar
Uppáhalds tónlistarmaður: Herra Hneta
Fyndnasti Íslendingurinn: Kári Snorrason allan daginn
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Kökudeig, Oreo og jarðarber.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Pöntunin þín verður tilbúin eftir 10 mínútur - Saffran
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Blix og Njarðvík
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Sölvi Geir Ottesen og Kári Árna voru erfiðir.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Arnar Hallsson því ég bætti mig mest hjá honum en það eru margir góðir þjálfarar sem hafa þjálfað mig.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Eyþór Orri Ómarsson, hann er alvöru kóngur en það verður þreytt að spila móti honum.
Sætasti sigurinn: Úff erfitt að velja en allir sigrar á Breiðablik eru eftirminnilegir. Bikarúrslit í 3 flokki 2018 móti ÍR fær líka shout.
Mestu vonbrigðin: Hef tapað nokkrum sinnum í úrstlitum Íslandsmótsins móti Breiðablik, það eru mikil vonbrigði.
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr íslensku liði í þitt lið: Valgeir Valgeirsson.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Kristian Hlyns.
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Guðmundur Tyrfingsson í Selfoss og Konráð Elí í HK.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Elín Metta
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi er geitin.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Valdimar Einarsson í HK
Uppáhalds staður á Íslandi: Kórinn.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Var varamarkmaður í einum leik með 3 flokki HK í fyrrasumar og kom inná. Ég varði víti eftir að Óli markmaður fékk rautt
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Fer í sturtu
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ég fylgist með öllum íþróttum en horfi mest á NBA deildina og Olís deildina í handboltanum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Hef alltaf verið Adidas maður en nýlega farinn yfir í Nike og spila í vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Sund
Vandræðalegasta augnablik: uuu ekkert eitt eitthvað sem ég man eftir
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Hjörvar Daði markmaður HK, Anton Loga í SPAL og Ívar Orra í HK. Þeir eru allir helvíti klárir og það væri létt að lifa af á þessari eyðieyju með þeim.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég var markmaður í bandý fyrir nokkrum árum og komst í meistaraflokk 12 ára.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Arnar markmaður HK bara því maðurinn æfir rosalega mikið og er alltaf mættur langfyrstur.
Hverju laugstu síðast: Ætli ég hafi ekki logið að vini mínum Kára áðan að playstation fjarstýringin mín væri brotin og ég kæmist því ekki í Fortnite.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hita upp.
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: Fékk að fara heim til Íslands og er í sóttkví núna, þannig það er bara Playstation og Football Manager.
Athugasemdir