AS Roma hefur bæst í hóp þeirra sem leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn kórónaveirunni.
Ítalía hefur fengið ansi harðan skell vegna veirunnar og hafa þúsundir látist í landinu á nokkrum dögum.
Allir leikmenn og starfsmenn félagsins gáfu einn dag af launum og er heildarsöfnun AS Roma komin upp í 460 þúsund evrur, sem samsvarar rétt tæplega 70 milljónum króna.
Peningurinn verður notaður til að borga fyrir rúm, öndunarvélar, grímur, handspritt og einnota hanska.
Athugasemdir