Leeds United fær Brentford í heimsókn í lokaleik laugardagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Daniel Farke þjálfari Leeds gerir aðeins eina breytingu eftir markalaust jafntefli við Crystal Palace um síðustu helgi. Jayden Bogle kemur inn í vængbakvarðarstöðuna fyrir Gabriel Gudmundsson sem er í leikbanni.
Leeds er þremur stigum frá fallsvæðinu og þarf því helst á sigri að halda til að fjarlægjast fallbaráttuna.
Brentford, sem getur blandað sér í baráttuna um evrópusæti með sigri, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu hjá sér. Keith Andrews þjálfari virðist breyta um leikkerfi eftir óvænt jafntefli gegn botnliði Wolves í síðustu umferð, þar sem hann tekur kantmanninn Dango Ouattara úr byrjunarliðinu og skiptir miðverðinum Ethan Pinnock inn í hans stað.
Þetta er sjaldgæft tækifæri fyrir Pinnock í byrjunarliðinu, en hann er 32 ára gamall og hefur aðeins komið við sögu í þremur úrvalsdeildarleikjum það sem af er tímabils.
Þá kemur Yehor Yarmoliuk inn á miðjuna fyrir Mikkel Damsgaard sem er að glíma við meiðsli.
Hákon Rafn Valdimarsson er á sínum stað á varamannabekknum.
Leeds: Darlow, Bogle, Rodon, Bijol, Struijk, Justin, Stach, Ampadu, Aaronson, Nmecha, Calvert-Lewin
Varamenn: Perri, Bornauw, Gruev, Longstaff, Tanaka, Gnonto, James, Okafor, Piroe
Brentford: Kelleher, Kayode, Collins, Van den Berg, Pinnock, Lewis-Potter, Yarmoliuk, Henderson, Jensen, Schade, Thiago
Varamenn: Valdimarsson, Nelson, Ouattara, Donovan, Furo, Bentt, Shield, Stephenson, McManus,
Athugasemdir


