Fotbolti.net
21.03.26 - 13:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ekitike fór af velli með tárin í augunum

Hugo Ekitike.

Hugo Ekitike.

Canon

Mynd: EPA

Enn bætist á meiðslalista Liverpool því Hugo Ekitike fór meiddur af velli með tárin í augunum í leik gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni sem núna stendur yfir.

Ekitike lenti í samstuði við James Milner, fyrrum leikmann Liverpool, snemma leiks og gat ekki haldið leik áfram.
Ekitike fékk aðhlynningu og yfirgaf völlinn með tárin í augunum. Þetta leit alls ekki vel út þar sem hann fór beint inn í klefa áður en hann sneri svo aftur á bekkinn síðar í hálfleiknum.

Ekitike hefur verið einn ljósasti punkturinn á frekar erfiðu tímabili hjá Liverpool.

Alisson og Mohamed Salah meiddust báðir í vikunni og eru fjarri góðu gamni í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.