Fotbolti.net
21.03.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Joey Barton enn í haldi eftir líkamsárás

Joey Barton enn í haldi eftir líkamsárás
Canon

Mynd: EPA

Fyrrum fótboltamaðurinn Joey Barton hefur verið í gæsluvarðhaldi í tæplega tvær vikur eftir líkamsárás nálægt vinsælum golfklúbbi í Liverpool.
Barton bað í gær um að fá að greiða lausnarfé en var hafnað svo hann þarf að dúsa áfram í varðhaldi næstu vikur.

Barton, 43 ára, er ákærður ásamt Gary O'Grady fyrir líkamsárásina sem beindist að fyrrum fótboltaþjálfaranum Kevin Lynch. O'Grady, sem er fimmtugur, hefur verið sleppt úr varðhaldi.

Barton mætti ekki í réttarhöldin sjálfur, þrátt fyrir að vera í varðhaldi, heldur sendi hann lögmann í staðinn. Þeir eiga að mæta aftur í dómsal 7. apríl.

Barton lék meðal annars fyrir Manchester City, Newcastle og Marseille á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og spilaði einn A-landsleik fyrir England.

Hann gerðist svo aðalþjálfari hjá Fleetwood Town og Bristol Rovers eftir að hafa lagt skóna á hilluna en hefur að undanförnu lagt meiri einbeitingu í hlaðvarpsþættina sína.

Joey Barton handtekinn grunaður um líkamsárás við golfvöll
TENGT EFNI

Joey Barton handtekinn grunaður um líkamsárás við golfvöll

Joey Barton enn í haldi eftir líkamsárás
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.