Fylkir 4 - 4 KR
1-0 Guðfinnur Þór Leósson ('6 )
1-1 Aron Sigurðarson ('16 )
1-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('21 )
1-3 Amin Cosic ('31 )
2-3 Guðmundur Tyrfingsson ('41 )
3-3 Guðmundur Tyrfingsson ('68 )
4-3 Birkir Eyþórsson ('95 )
4-4 Sigurður Breki Kárason ('97 )
Rautt spjald: Arnar Freyr Ólafsson, KR ('64) Lestu um leikinn
1-0 Guðfinnur Þór Leósson ('6 )
1-1 Aron Sigurðarson ('16 )
1-2 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('21 )
1-3 Amin Cosic ('31 )
2-3 Guðmundur Tyrfingsson ('41 )
3-3 Guðmundur Tyrfingsson ('68 )
4-3 Birkir Eyþórsson ('95 )
4-4 Sigurður Breki Kárason ('97 )
Rautt spjald: Arnar Freyr Ólafsson, KR ('64) Lestu um leikinn
Úrslitaleikur Lengjubikarsins fór fram í dag og úr varð ótrúleg skemmtun þegar Fylkir og KR mættust í Árbænum.
Fylkismenn tóku forystuna eftir sex mínútna leik en Aron Sigurðarson jafnaði metin tíu mínútum síðar með frábæru skoti. Stuttu eftir það var Eiður Gauti Sæbjörnsson búinn að koma KR yfir.
Amin Cosic kom KR í 1-3 með mjög góðu marki eftir hálftíma leik en fyrir leikhlé minnkaði Guðmundur Tyrfingsson muninn.
Eftir rúman klukkutíma leik dró heldur betur til tíðinda þegar Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR-inga, fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot. Fjórum mínútum síðar jafnaði Guðmundur Tyrfingsson metin með öðru marki sínu.
Leikurinn stefndi í vítaspyrnukeppni en uppbótatíminn var magnaður þar sem Birkir Eyþórsson kom Fylki yfir á 95. mínútu. Tíu KR-ingar gáfust hins vegar ekki upp og jafnaði hinn bráðefnilegi Sigurður Breki Kárason með marki af miklu harðfylgi. Það var nánast síðasta spyrna leiksins og því var farið í vítaspyrnukeppni.
Vítaspyrnukeppnin:
0-1 Aron Sigurðarson skorar
1-1 Guðmundur Tyrfingsson skorar
1-2 Luke Rae skorar
2-2 Arnór Breki Ásþórsson skorar
2-2 Gabríel Hrannar Eyjólfsson klikkar
3-2 Birkir Eyþórsson skorar
3-3 Guðmundur Andri Tryggvason skorar
4-3 Máni Austmann skorar
4-3 Amin Cosic klikkar
Fylkir er því Lengjubikarmeistari og Heimir Guðjónsson er búinn að vinna sinn fyrsta titil með Fylki.
Athugasemdir


