Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister hefur alls ekki fundið taktinn á yfirstandandi tímabili.
Hann hefur átt mjög erfitt uppdráttar inn á miðsvæðinu hjá Liverpool.
Hann hefur átt mjög erfitt uppdráttar inn á miðsvæðinu hjá Liverpool.
Rætt var aðeins um Mac Allister og frammistöðu hans í Enski boltinn hlaðvarpinu á dögunum.
„Mac Allister vinnur tvö einvígi af tólf," sagði Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, um leikinn gegn Tottenham. „Hann lítur út fyrir að vera 35 ára á síðustu metrunum."
Mac Allister er bara 27 ára gamall en á meðan hann hefur spilað illa þá hefur Dominik Szoboszlai staðið sig frábærlega.
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Athugasemdir



