Það er svona frekar rólegt yfir slúðrinu þennan laugardaginn. En skoðum það helsta.
Liam Delap (23), sóknarmaður Chelsea, er á óskalista Newcastle fyrir sumarið en hann kostar um 40 milljónir punda. (Talksport)
Kobbie Mainoo (20) er að framlengja við Manchester United til 2031. Hann mun hækka verulega í launum og fá um 120 þúsund pund í vikulaun þegar hann skrifar undir. (Talksport)
Vonir Liverpool um að Inter selji varnarmanninn Alessandro Bastoni (26) eru að dala. (Teamtalk)
Tottenham hefur skoðað þýska markvörðinn Noah Atubolu (23) en líklegt er að Guglielmo Vicario muni fara heim til Ítalíu eftir tímabilið þar sem Inter er líklegur áfangastaður. (Mail)
Kiernan Dewsbury-Hall (27) er ekki til sölu fyrir neitt verð. Manchester United hefur sýnt honum áhuga. (Teamtalk)
Eddie Howe, stjóri Newcastle hefur lýst fréttum um að Bruno Guimaraes (28) sé á leið til Man Utd sem vanvirðingu fyrir Newcastle og fyrirliða þeirra. (Sky Sports)
Man Utd og Liverpool eru á meðal félaga sem eru á eftir Antonee Robinson (28), vinstri bakverði Fulham. (Caught Offside)
Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, er einn af þeim sem kemur til greina í stjórastarf Athletic Bilbao. (Marca)
Einnig hefur verið rætt um Iraola hjá Tottenham og Crystal Palace. (Mail)
Athugasemdir



