Graeme Souness, fyrrum leikmaður og stjóri Liverpool, segir að Mohamed Salah sé stærsta ástæðan fyrir slökum árangri Liverpool á tímabilinu.
Salah var langbesti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð er Liverpool varð meistari en hefur ekki náð að sýna sitt besta á þessu tímabili. Souness er ekki sáttur með Egyptann og segir hans bestu ár að baki.
Salah var langbesti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð er Liverpool varð meistari en hefur ekki náð að sýna sitt besta á þessu tímabili. Souness er ekki sáttur með Egyptann og segir hans bestu ár að baki.
„Að mínu mati og út frá minni reynslu þróast ferill leikmanna yfirleitt á einn af tveimur vegum. Þegar þú ert kominn á 33–34 ára aldur er þetta annað hvort það að ferillinn detti fram að bjargi, eða þá hæg og stöðug hnignun. Ég held að Salah sé í fyrri flokknum," segir Souness.
„Ég fór á fyrsta leik tímabilsins, Samfélagsskjöldinn gegn Crystal Palace, og sat við hliðina á syni mínum. Ég sagði: 'Ég skil ekki hvað er að honum?' Svo hugsaði ég með mér að hann þyrfti kannski fimm til sex leiki til að komast í gang. En hann hefur aldrei bætt sig."
Souness hélt svo áfram pirraður.
„Tölurnar hjá honum hafa hrunið og hann er stærsta ástæðan fyrir því að tímabilið hjá Liverpool hefur verið svona upp og ofan. Innan hópsins eru leikmenn sem finna fyrir pressunni og neikvæðninni í kringum liðið og bregðast ekki vel við því. Í slíkri stöðu þurfa stærstu leikmennirnir að stíga upp og taka ábyrgð."
„Hans bestu ár eru að baki, það er enginn vafi á því. Fyrsti maðurinn til að átta sig á því ert þú sjálfur, og þetta gerist hjá öllum. Ég sé ekki lengur sama neista. Ef þú ert að leita að stærstu skýringunni á sveiflukenndu gengi Liverpool, þá er það einfaldlega vegna þess að hann er ekki að skila tölunum."
Souness er staðfastur á því að Salah eigi að yfirgefa Liverpool eftir tímabilið sem er nokkuð líklegt.
Athugasemdir


