21.04.24 - 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: Úlfarnir enduðu mótið á sigri


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfarnir 3 - 0 Hörður Í.
1-0 Steinar Haraldsson ('55 )
2-0 Börkur Þorri Þorleifsson ('60 )
3-0 Steinar Haraldsson ('68 )
Keppni í C-deild Lengjubikarsins lauk í dag með leik Úlfana og Harðar Í.
Leikurinn fór fram í Úlfarsárdalnum og heimamenn fóru með sigur af hólmi eftir markalausan fyrri hálfleik.
Steinar Haraldsson opnaði markareikninginn snemma í síðari hálfleik og Börkur Þorri bætti öðru markinu við stuttu síðar áður en Steinar bætti þriðja marki Úlfana við og öðru marki sínu.
Úlfarnir enda í næst neðsta sæti riðilsins með fjögur stig en Hörður er án stiga á botninum.
