Fotbolti.net
21.05.22 - 14:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ronaldo ekki með í síðasta leik undir stjórn Rangnick

Ronaldo ekki með í síðasta leik undir stjórn Rangnick
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo hefur leikið sinn síðasta leik á tímabilinu fyrir Manchester United en hann verður ekki með liðinu á morgun þegar liðið mætir Crystal Palace í loka umferðinni.

Hann er að kljást við meiðsli á mjöðm og getur því ekki tekið þátt í síðasta leik Ralf Rangnick undir stjórn félagsins. Erik ten Hag mun taka við af honum þegar tímabilinu líkur.

United hefur ekki spilað leik síðustu tvær vikur en síðasti leikur liðsins var slæmt 4-0 tap gegn Brighton þann 7. maí.

Ronaldo skrifaði undir tveggja ára samning við félagið síðasta sumar. Ten Hag hefur sagt að hann vilji halda Portúgalanum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.