Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júní 2021 22:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: Elliði skellti Víði á útivelli
Mynd: Twitter
Víðir 0 - 4 Elliði
0-1 Jónas Breki Svavarsson
0-2 Benedikt Daríus Garðarsson
0-3 Ásgeir Örn Arnþórsson
0-4 Natan Hjaltalín

Elliði fór illa með Víði þegar liðin áttust við í 4. deild karla í kvöld en leikið var í Garðinum.

Jónas Breki Svavarsson, Benedikt Daríus Garðarsson, Ásgeir Örn Arnþórsson og Natan Hjaltalín voru á skotskónum fyrir gestina úr Árbænum í kvöld.

Lokatölur voru 0-4 fyrir Elliðamenn sem eru komnir aftur upp í annað sætið. Þeir hafa hins vegar spilað leik meira en Ægir sem er í þriðja sæti og tveimur stigum á eftir.

Víðir, sem féll úr 2. deild síðasta sumar, hefur ekki átt gott sumar til þessa og er í áttunda sæti með níu stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner