Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
banner
laugardagur 27. júlí
Lengjudeild karla
Besta-deild karla
mánudagur 22. júlí
Besta-deild karla
föstudagur 19. júlí
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
þriðjudagur 16. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 15. júlí
Besta-deild karla
sunnudagur 14. júlí
Úrslitaleikur EM
Besta-deild karla
föstudagur 12. júlí
Undankeppni EM kvenna
þriðjudagur 9. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
mánudagur 8. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
mánudagur 1. júlí
Lengjudeild kvenna
laugardagur 29. júní
Mjólkurbikar kvenna
laugardagur 27. júlí
Engin úrslit úr leikjum í dag
þri 21.jún 2022 23:55 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Hvernig Ísak Snær varð óvænt langbestur í deildinni

Það hefur ekki gerst mjög oft að leikmaður komi eins mikið á óvart og Ísak Snær Þorvaldsson hefur gert í sumar. Hvernig hefur hann farið að þessu? Rýnum í gögnin.

Ísak fagnar marki í sumar.
Ísak fagnar marki í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak, sem er uppalinn hjá Aftureldingu, fór ungur að árum til Norwich í Englandi. Hann kom heim sumarið 2020 og samdi við ÍA um að leika þar á láni. Hann kom aftur á Akranes í fyrra og lék þá 20 leiki í efstu deild og skoraði þrjú mörk.

Ísak var valinn bestur af bæði leikmönnum og stuðningsmönnum hjá ÍA – liði sem endaði í níunda sæti - en það er samt sem áður ekki hægt að segja að hann hafi verið mikið meira en allt í lagi í fyrra.

Hann gerði samt nóg til að sannfæra Óskar Hrafn Þorvaldsson og Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, og fékk hann samning í Kópavogi snemma á þessu ári.

Það er ákvörðun sem Blikar og Ísak sjá alls ekki eftir.

En hvernig hefur þetta gerst? Hvernig fór Ísak að því að vera langbesti leikmaður Bestu deildarinnar til þessa? Hvernig hefur hann farið úr því að skora þrjú mörk í 20 leikjum - í það að skora tíu mörk í níu leikjum í upphafi þessa tímabils?

Tók sjálfan sig í gegn
„Ef ég á að segja eins og er var ég spikfeitur í byrjun tímabilsins. Síðan þegar fólk var farið að segja að ég væri of feitur, þá tók ég mig í gegn,“ sagði Ísak í viðtali við Fótbolta.net í janúar 2022.

Þá var hann að tala um síðasta tímabil.

Hann var alls ekki góðu standi þegar síðasta tímabil byrjaði og viðurkennir það sjálfur. Hann tók sig á líkamlega eftir því sem leið á tímbilið og gerði það enn frekar fyrir yfirstandandi tímabil.



Ísak sagði að Óskar Hrafn ætlaði að gera sig að hermanni og það er raunin. Það að hann sé í frábæru formi spilar stórt hlutverk í frábærum árangri hans, það er engin spurning um það.

Hann er mikið léttari á fæti en er samt enn með mikinn styrk. Í gær þegar Breiðablik vann 4-1 sigur á KA, þá lagði hann upp tvö mörk. Í báðum stoðsendingunum sýndi hann merki um líkamlegan styrk sinn.


Í öðru markinu fær Ísak boltann við miðjuhringinn, hann tekur á rás og nýtir hraða sinn og kraft. Hann skýlir svo boltanum vel áður en hann leggur hann til hliðar á Jason Daða Svanþórsson á góðum tímapunkti.


„Ég er enn að vinna í því að létta mig um nokkur kíló, fara aðeins niður í fituprósentu. Ég vil sjálfur ekki missa of mikla vöðvaprósentu, vil halda þessum styrk sem mér finnst ég nota best í fótbolta - að halda mönnum frá mér og svona,“ sagði Ísak í viðtalinu fyrir tímabil.

Og það er rétt hjá honum. Það er mikilvægt fyrir hann að halda í þennan styrk en núna er hann með einn meiri kraft og hraða, sem nýtist honum gríðarlega vel í að hjálpa sínu liði. Það er líklega enginn leikmaður í deildinni sem er með eins mikinn kraft og Ísak.

Hann talaði líka um að hann hefði verið slæmum stað utan vallar í fyrra og það hefði haft áhrif innan vallar. Það er gott að staðan sé betri hjá honum núna.

Hlutverk í fyrra
Í fyrra spilaði Ísak sem yfirleitt sem miðjumaður í 4-1-4-1 kerfinu sem ÍA notaði oftast, eða í 57 prósent tilvika. Hann byrjaði tímabilið sem djúpur á miðju en var svo færður ofar þegar leið á tímabilið og var hann einn af tveimur miðjumönnum fyrir framan djúpa miðjumanninn í kerfinu.

Kerfið sem ÍA notaði í úrslitaleik Mjólkurbikarsins gegn ÍA. Ísak er þarna númer 19.

Ísak var þarna í liði sem var nánast alltaf undir í þeim leikjum sem það spilaði. ÍA var minnst með boltann af öllum liðum deildarinnar eða um 40,44 prósent að meðaltali í leik. Þá var liðið var að meðaltali með 1,32 xG (Expected Goals) í deildarleikjum sínum síðasta sumar á meðan andstæðingar þeirra var að meðaltali með 2,03 xG í leik.

ÍA var líka versta pressulið deildarinnar með 13,43 í PPDA (Passes Allowed Per Defensive Action).

Í liði ÍA þurfti Ísak að gegna meira varnarhlutverki, hann þurfti að leggja meiri áherslu á varnarleikinn. Hjá ÍA var hann til að mynda að fara í fleiri varnareinvígi eða um 6,91 í leik.

Ísak byrjaði síðasta tímabil sem fyrsti varnarmaður fyrir framan fjögurra manna varnarlínuna, hann átti að vernda línuna. Hann fékk stundum leyfi til að fara fram völlinn á meðan hann var djúpur miðjumaður en stundum er eins og það hafi vantað tilganginn með þeim hlaupum upp völlinn.


Hérna er hann í leik gegn Stjörnunni í fyrra, mjög djúpt á vellinum að sinna varnarhlutverki sínu. Hann nær þarna að blokka skotið og vinna boltann.

Hann fær í kjölfarið leyfi til að hlaupa upp völlinn en það kemur lítið út úr því, sóknin er hæg, lítið plan og þetta endar á að vera frekar tilgangslaust hlaup; mikil orka fyrir ekki neitt.

Ísak var svo færður framar þegar leið á tímabilið. Hann varð ein af þessum tveimur áttum fyrir framan djúpa miðjumanninn. Þá fékk hann á köflum að fara framar og tók stundum þátt í hápressu ásamt fremsta manni.


Þetta er úr leik gegn HK. Jóhannes Karl Guðjónsson, þáverandi þjálfari ÍA, kallar á Ísak að fara með Viktori Jónssyni upp í pressuna og Ísak lokar vel. Þetta var leikur sem ÍA vann 4-1.

Stundum virkuðu hlaupin sem hann tók, eins og í leiknum gegn HK þar sem hann skoraði. En hann var ekki nægilega oft að skila sér inn í teiginn og var oftast ekki nægilega nálægt markinu. Hann var að meðaltali með 1,17 snertingu inn í teig í leik í efstu deild árið 2021.


Hérna vinnur Ísak vel með sóknarmanninum, Viktori Jóns, og á gott hlaup inn fyrir. Það endar með marki.


Meginmunurinn er sá að í þessu hlutverki var hann líka að sinna mikilli varnarvinnu aftarlega á vellinum og þurfti að hlaupa mikið upp og niður völlinn.


Úr leik gegn Víkingum þar sem ÍA þurfti að sinna mikilli varnarvinnu. Liðið fékk fjóra í xG á sig í leiknum. Þetta er ekki staða á vellinum sem Ísak er að leysa fyrir Breiðablik í sumar.

Strikerinn sem Blikum vantaði
Í vetur var það mikið í umræðunni að Blikum vantaði hreinræktaða níu.

Árni Vilhjálmsson og Thomas Mikkelsen fóru. Pétur Theódór Árnason meiddist illa. Hver á að skora mörkin? Það var stóra spurningin þegar kom að Blikum.

Það bjóst enginn við því að maður sem skoraði þrjú mörk í 20 leikjum í fyrra myndi stíga svona rosalega upp. En öllum að óvörum er Ísak búinn að stíga upp, og gott betur en það.

Hann er búinn að sanna sig sem strikerinn sem Blikum vantaði. Ísak er búinn að fá gjörbreytt hlutverk í Kópavogi. Hann er engin átta í græna búningnum. Í flæðandi kerfi Breiðabliks er Ísak búinn að spila mest sem vinstri kantmaður en það er líka hægt að túlka það þannig að hann sé að spila sem sóknarmaður, sem nía.


Fyrir ofan má sjá mynd af því hvernig Breiðablik stillti upp gegn Val á dögunum. Þetta eru meðalstöður leikmanna í leiknum. Ísak spilaði ekki þann leik en þarna má sjá hvernig kerfi Blikar eru mikið að vinna með.

Í sumar hefur Ísak verið að leysa stöðuna sem má sjá leikmann númer 16, Dag Dan Þórhallsson, leysa í þessum leik á móti Val. Ísak hefur verið að vinna úti vinstra megin en er mikið að koma inn á völlinn og er að spila í kringum níuna sem mætti kalla falska níu. Í þessum leik á móti Val var Kristinn Steindórsson að spila falska níu með Dag Dan og Jason Daða að vinna í kringum sig.

Það má segja að þetta sé svipað og Liverpool var að gera með Roberto Firmino sem falska níu og kantmennina tvo – Mohamed Salah og Sadio Mane – að vinna í kringum hann.

Ísak er að spila gjörbreytt hlutverk frá því í fyrra og það er ekki eins mikil varnarvinna fólgin í núverandi hlutverki hans; hann er meira að fókusa á að hafa áhrif sóknarlega eins og xG-ið hans gefur til kynna. Hann er með 0,61 í xG að meðaltali í leik núna samanborið við 0,1 í fyrra.


Ísak er þarna í treyju númer 22, vinstra megin.

Ísak átti upphaflega ekki að spila á þessum stað fyrir Blika. Líklega var pælingin að hann myndi vera aðeins aftar á vellinum eins og hjá ÍA, en einhvern veginn þurftu þeir grænu að fylla í það skarð sem Árni Vilhjálms skildi eftir sig. Blikum vantaði þá hæð og þann styrk sem Árni býr yfir á þessum stað á vellinum. Ekki tókst að leysa það á leikmannamarkaðnum og því var ákveðið að prófa Ísak ofar á vellinum undir lok undirbúningstímabilsins.

Hann náði hann að læra þessa stöðu fljótt og þarna virðist honum líða best. Eftir að hann var prófaður svona ofarlega þá hefur ekki verið hægt að snúa til baka. Það verður að hrósa þjálfurum Breiðabliks að finna þetta hlutverk fyrir hann og hjálpa honum að aðlagast því.

Er alltaf á réttum stað
Ísak var greinilega viljugur að læra og var fljótur að ná þessu nýja og breytta hlutverki. Hann er með hlutverk sitt algjörlega á hreinu, tengir vel við liðsfélaga og hleypur ótrúlega vel.

Hann er með gríðarleg góðan skilning í því hvernig á að vinna í svæðinu frá vinstri og að miðju, og er hann með mikla og góða tengingu við vinstri bakvörðinn og níuna.

Hann vinnur í svæðinu milli bakvarðar og hafsents og býr þannig til pláss fyrir vinstri bakvörðinn utan á sig. Hann er svo frábær í að finna svæði í teignum - og í kringum teiginn - og skila sér í þau. Hann er með mikinn skilning á leiknum og veit hvar hann á að vera.


Á þessari mynd má sjá hvernig Ísak vinnur með níunni (Kristinn Steindórsson) og vinstri bakverðinum (Davíð Ingvarsson). Þetta er mjög beinskeytt og efektív sókn; langur bolti fram á Ísak sem er búin að búa til svæði fyrir Davíð til að hlaupa í - með því að koma aðeins inn á völlinn. Ísak skilar boltanum niður á Kristin sem á frábæra sendingu á Davíð.

Þetta endar svo með því að Davíð á hnitmiðaða fyrirgjöf á Ísak sem er búinn að finna sér svæði í teignum til að skila boltanum í netið.

Það sem er svo merkilegt við frammistöðu Ísaks í sumar er hversu mikið markanef hann er með, svona allt í einu. Hann hefur ekki verið þekktur sem mikill markaskorari á sínum unga ferli, en í sumar hefur hann sýnt að hann er markaskorari af guðs náð þegar hann fær tækifæri til þess.

Hann er gríðarlega aggresívur í teignum og er manna frekastur að skila boltanum í markið. Staðsetningar hans eru ótrúlega góðar og hann er alltaf einhvern veginn búinn að koma sér á réttan stað.

Nýjasta dæmið um það er úr leiknum gegn KA í gær.


Hann er þarna (þar sem græni hringurinn er) þegar boltinn við miðjuhringinn. Svo berst boltinn út hægra megin. Á leiðinni upp völlinn hlaupa menn fram hjá Ísaki, en hann er alltaf með það markmið að finna sér autt pláss. Hann gerir það með klókindum.


Það skemmir ekkert fyrir að vera með Höskuld Gunnlaugs og Davíð Ingvars til að senda þessa bolta fyrir.

Hann er að skora mörk með klókum hlaupum inn í teig. Ísak er gríðarlega agressívur og áræðinn í teignum og það er að skila honum vel. Í sumar hefur hann verið miklu duglegri við að skila sér í teiginn og er með 3,47 snertingar í teignum að meðaltali í leik sem er mun meira en í fyrra.

Hann er alltaf tilbúinn að hoppa á frákastið og er mjög svo öflugur í loftinu. Ísak er mikilvægur fyrir Blika þegar þeir kjósa að fara langt - upp á það að vinna fyrsta boltann. Hann er að fara upp í fleiri skallaeinvígi núna en hann gerði í fyrra og leita Blikar að honum í loftinu. Hann er að gefa aðeins færri sendingar núna en í fyrra, en sendingarnar eru betri og fara oftar á liðsfélaga. Það er einhver tilgangur í öllum hans aðgerðum.

Ísak gegnir líka mikilvægu hlutverki í föstum leikatriðum og er búinn að skora tvö mörk eftir horn í sumar.

Blómstrar í betra liði
Ísak er búinn að blómstra hingað til í sumar og það hefur auðvitað áhrif líka að hann er að spila í betra liði með betri leikmenn í kringum sig.

Breiðablik er búið að skora flest mörk, er 54,1 prósent með boltann að meðaltali í leik og er eitt af betri pressuliðum deildarinnar með 8,85 PPDA (Passes Allowed Per Defensive Action).



Liðið er sóknarsinnaðara en ÍA í fyrra og er með miklu meiri völd á leiknum. Breiðablik er með 3,1 í xG í leik í sumar á meðan andstæðingur þeirra er bara með 1,2 í xG að meðaltali.

Eftir leiki gærdagsins eru Blikar á toppi Bestu deildarinnar með átta stiga forskot.

Slær hann markametið?
Markametið í efstu deild er 19 mörk, en núna er búið að fjölga leikjum og verða þeir 27 í sumar. Ísak er kominn með tíu mörk þegar rúmlega 1/3 er búinn af mótinu. Hann hefur hentað gríðarlega vel í lið Breiðablik og er að sanna sig sem einn af leikmönnum framtíðarinnar á Íslandi.

Hann er búinn að skora tólf mörk og leggja upp þrjú í deild og bikar í sumar. Magnaður árangur og ekki síst í ljósi þess að hann er bara með 5,65 í xG í sumar. Hann er með sjálfstraustið í botni og er að nýta þau færi og þær stöður sem hann kemur sér í einstaklega vel. Það er eins og hann hafi alltaf verið að spila sem sóknarmaður og er það mjög dýrmætt fyrir lið hans.



Ef Ísak heldur svona áfram, þá mun hann slá markametið í efstu deild á Íslandi. Eitthvað sem enginn bjóst við fyrir tímabil. Það er að segja ef hann klárar tímabilið á Íslandi. Það er eflaust mikill áhugi erlendis frá, en það hlýtur að heilla þennan frábæra leikmann að taka Íslandsmeistaratitilinn og bæta markametið áður en hann fer út.

Þessi grein er unninn út frá gögnum frá WyScout.

Sjá einnig:
„Á engin orð yfir þessum leik sem Ísak bauð upp á hérna í dag"
Athugasemdir
banner
banner
banner