Fotbolti.net
15.11.26 - 14:08
Brynjar Ingi Erluson

Sindri Kristinn í góðum málum eftir dramatískan sigur

Sindri Kristinn er aðalmarkvörður Vasalund

Sindri Kristinn er aðalmarkvörður Vasalund

Canon

Mynd: Vasalund

Sindri Kristinn Ólafsson varði mark Vasalund sem vann dramatískan 2-1 sigur á Enskede í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í sænsku C-deildinni á næsta tímabili.
Vasalund hafnaði í 13. sæti norðurriðils sænsku C-deildarinnar með 34 stig og þurfti því að fara í umspil gegn Enskede um sæti í deildinni á næsta tímabili.

Enskede hafnaði í öðru sæti norður Svealand-riðilsins í sænsku D-deildinni og freistar þess að komast upp um deild.

Liðin mættust á heimavelli Enskede í dag og komust gestirnir í Vasalund yfir strax á 5. mínútu. Heimamenn náðu hins vegar að jafna þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka og stefndi allt í jafntefli.

Vasalund átti þó síðasta orðið og skoraði sigurmark þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Liðið fer því með eins marks forskot inn í seinni leikinn sem fer fram eftir sex daga.

Sindri gekk til liðs við Vasalund frá Keflavík fyrir tímabilið og hefur verið aðalmarkvörður liðsins. Hann hefur alls spilað 24 leiki á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.