Fotbolti.net
21.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Leedsarar búnir að samþykkja tilboð í Rio Ferdinand (STAÐFEST)

Leeds United hefur samþykkt 30 milljón punda tilboð Manchester United í Rio Ferdinand. Man Utd hafði frest til hádegis í dag til að skila inn nýju tilboði til Leeds og samþykkti félagið tilboðið skömmu síðar. Ferdinand sem er aðeins 23 ára gamall mun nú setjast að samningaborði Man Utd og ræða kaup og kjör. Peter Ridsdale stjórnarformaður Leeds sagði: ,,Ef hann samþykkir sína skilmála og kemst í gegnum læknisskoðun þá verður hann Man Utd leikmaður. Allir hjá Leeds óska honum góðs í framtíðinni."
Verði af samningnum milli Rio og United þá verður hann dýrasti varnarmaður heims auk þess að verða dýrasti leikmaður Englands. Ridsdale hafði áður hafnað tveimur tilboðum Man Utd í leikmanninn en samþykkti svo síðasta tilboðið í morgun sem er sagt hljóða uppá 30 milljónir punda. Að lokum verður að taka fram að þrátt fyrir að félögin hafi náð samkomulagi sín á milli er ekki enn fullvíst að Rio verði leikmaður Man Utd eins og sannaðist í morgun þegar Liverpool hætti við að semja við Lee Bowyer eftir að hafa náð samkomulagi við Leeds.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.