Fotbolti.net
21.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Rivaldo hættur hjá Barcelona!!! (STAÐFEST)

Brasilíumaðurinn Rivaldo er á förum frá Barcelona eftir að hafa komist að samkomulagi við félagið um að rifta samningnum. Rivaldo átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og hafði neitað að ræða um nýjan samning. Þrátt fyrir það kemur þessi ákvörðun um að sleppa honum strax nokkuð óvænt. Í yfirlýsingu á heimasíðu Barcelona segir, ,,Barcelona og Rivaldo tilkynna hér með að þau hafi komist að samkomulagi um að rifta samningi sem hefur staðið síðustu fimm ár. Báðir aðilar telja að þessi ákvörðun sé að þeim fyrir bestu og vilja taka fram að þeir skilji sáttir. Það er ljóst að mörg félög munu sýna því áhuga að njóta starfskrafta Rivaldo og þegar hafa Real Madrid, Lazio og Newcastle verið nefnd til sögunnar. Að lokum lofaði félagið blaðamannafundi mjög fljótlega þar sem nánar verði greint frá málinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.