Fotbolti.net
21.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vilja að minnsta kosti 60 milljónir fyrir Lacroix

Vilja að minnsta kosti 60 milljónir fyrir Lacroix
Canon

Mynd: Crystal Palace

Chelsea hefur mikinn áhuga á miðverðinum Maxence Lacroix sem er samningsbundinn Crystal Palace og var valinn í franska landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið.
Lacroix er 26 ára og var hjá Wolfsburg og Sochaux áður en Palace keypti hann í sínar raðir fyrir tveimur árum síðan, fyrir 18 milljónir punda.

Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í hjarta varnarinnar hjá Palace síðan þá og gerði vel að ryðja sér leið í ógnarsterkt landslið Frakklands.

Lacroix er með þrjú ár eftir af samningi við Palace og bauð félagið honum nýjan samning, en varnarmaðurinn vill skipta um félag til að berjast um stærstu titlana.

Chelsea og Palace eru í viðræðum um kaupverð og segja enskir fjölmiðlar að Palace vilji fá að minnsta kosti 60 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem á þrjú ár eftir af samningi.

Sky Sports greinir frá því að Palace sé að horfa til Chrislain Matsima hjá Augsburg sem mögulegan arftaka fyrir Lacroix.

Lacroix hefur spilað 98 leiki á tveimur árum hjá Palace og vill Chelsea styrkja vörnina sína. Lacroix á að taka sæti Trevoh Chalobah í hópnum.

Búast við tilboði frá Chelsea
TENGT EFNI

Búast við tilboði frá Chelsea

Vilja að minnsta kosti 60 milljónir fyrir Lacroix
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.