21.08.12 - 12:13
Daníel Freyr Jónsson
Sebastian Bassong til Norwich (Staðfest)

Sebastian Bassong.

Mynd: Getty Images

Sebastian Bassong.

Mynd: Getty Images
Norwich City hefur keypt varnarmanninn Sebastian Bassong frá Tottenham Hotspur.
Bassong, sem er frá Kamerún, skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við Norwich, en ekki var gefið upp hve mikið var greitt fyrir hann.
Miðvörðurinn lék seinni helming síðustu leiktíðar með Wolves sem lánsmaður en hann náði ekki að koma í veg fyrir að liðið félli.
Hann gekk í raðir Tottenham árið 2009 frá Newcastle. Þar hafði hann leikið í eitt tímabil og vakti talsverða athygli fyrir framgöngu sína.
Norwich veitir ekki af liðsstyrk í vörninni fyrir veturinn eftir að hafa fengið á sig fimm mörk gegn Fulham í fyrsta leik deildarinnar.