21.08.12 - 13:36
Magnús Már Einarsson
Alexander Buttner til Manchester United (Staðfest)

Alexander Buttner.

Mynd: Getty Images

Alexander Buttner.

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur gengið frá kaupum á Alexander Buttner vinstri bakverði Vitesse Arnhem. Buttner stóðst læknisskoðun hjá United í gær og í dag skrifaði hann undir fimm ára samning við félagið.
,,Alexander er einn af bestu ungu vinstri bakvörðunum í Evrópu og við erum ánægðir með að hafa krækt í hann,\" sagði Sir Alex Ferguson stjóri United.
,,Við höfum fylgst með honum í þónokkurn tíma núna. Hann gefur okkur spennandi möguleika í þessari stöðu.\"
Buttner mun berjast við Patrice Evra um vinstri bakvarðarstöðuna en þessi 23 ára gamli leikmaður er ánægður með að vera kominn til United.
,,Að ganga í raðir Manchester United er einn af bestu dögum lífs míns. Þetta er lið sem ég hef dáðst af í mörg ár og ég get ekki beðið eftir að hitta liðsfélaga mína og hjálpa liðinu í að standa sig vel.\"

Heimild: Sky