21.08.12 - 18:00
Elvar Geir Magnússon
Ricardo Fuller til Charlton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn RIcardo Fuller, landsliðsmaður Jamaika, hefur gengið í raðir Charlton frá Stoke.
Charlton leikur í Championship-deildinni og gerði jafntefli í sínum fyrsta leik.
Charlton leikur í Championship-deildinni og gerði jafntefli í sínum fyrsta leik.
Fuller er 32 ára og skoraði 43 mörk í 182 leikum sínum fyrir Stoke. Hann hefur einnig leikið með Tivoli Gardens í heimalandinu og Hearts, Portsmouth, Southampton og Preston á Bretlandseyjum.
Hann á 57 landsleiki að baki fyrir Jamaika.
Hann á 57 landsleiki að baki fyrir Jamaika.
