Fotbolti.net
21.08.12 - 16:34
Daníel Freyr Jónsson

Emmanuel Adebayor til Tottenham (Staðfest)

Emmanuel Adebayor.

Emmanuel Adebayor.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham Hotspur hefur loksins gengið frá kaupunum á Emmanuel Adebayor frá Manchester City.
Þessi framherji frá Tógó var á láni hjá Tottenham á síðustu leiktíð og skoraði þá 17 mörk í 33 leikjum í deildinni.

Þessi kaup hafa legið í loftinu í allt sumar, en háar launakröfur Adebayor hafa tafið samningana.

Einungis einn framherji var eftir í hópnum hjá Andre Villas-Boas og þurfti hann því nauðsynlega að fjárfesta í einum slíkum.

Adebayor er 28 ára gamall. Hann lék fyrst á Englandi með Arsenal, en var síðan keyptur til Manchester City árið 2009. Hann var síðan lánaður til Real Madrid og nú síðast Tottenham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.