21.09.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Stephen Warnock til Bolton (Staðfest)

Stephen Warnock.

Mynd: Getty Images

Stephen Warnock.

Mynd: Getty Images
Bolton hefur fengið vinstri bakvörðinn Stephen Warnock á láni frá Aston Villa en samningurinn gildir til þriggja mánaða.
Warnock hefur ekki verið inni í myndinni hjá Paul Lambert stjóra Aston Villa og hann hefur nú farið til Bolton í Championship deildinni.
,,Stephen er leikmaður sem ég hef alltaf hrifist af og hann getur spilað nokkrar stöður sem er mjög mikilvægt í Championship deildinni,\" sagði Owen Coyle stjóri Bolton.
,,Við reyndum að fá hann áður en félagaskiptaglugginn lokaði en það gekk ekki svo ég er ánægður með að við höfum landað honum núna.\"
Warnock er uppalinn hjá Liverpool en hann fór síðan til Blackburn áður en hann gekk í raðir Aston Villa sumarið 2009..

Heimild: Heimasíða Bolton