Fotbolti.net
21.09.12 - 15:30
Daníel Freyr Jónsson

Ganso farinn til Sao Paulo (Staðfest)

Paulo Henrique \'Ganso\'.

Paulo Henrique \'Ganso\'.

Canon

Mynd: Getty Images

Einn efnilegasti leikmaður Brasilíu um þessar mundir, miðjumaðurinn Ganso, er genginn í raðir Sao Paulo frá Santos.
Hann hefur leikið 8 leiki með brasilíska landsliðinu og var hann meðal annars í hópnum sem lék á Ólympíuleikunum í sumar.

Samtals greiðir Sao Paulo um 7,5 milljónir punda fyrir þriðjungshlut í Ganso sem Santos átti, en 68% er áfram í eigu þriðja aðila.

Þessi stórefnilegi 22 ára leikmaður hefur reglulega verið orðaður við stórlið í Evrópu og voru Lundúnarliðin Arsenal og Tottenham bæði sögð hafa augastað á honum.

Þrátt fyrir ungan aldur lék Ganso yfir 160 leiki fyrir Santos á ferli sínum með félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.