Nú er keppni lokið í langflestum deildum landsins og voru lokatölur að berast úr 3. deildinni rétt í þessu.
Þar var fallbaráttan gríðarlega spennandi en nú er ljóst að KH er fallið eftir 2-0 tap gegn Hetti/Hugin. Ivan Bubalo gerði bæði mörk leiksins.
Augnablik fullkomnaði ótrúlega endurkomu sína úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð í dag, sem hafðist á Bessastaðavelli. Þorleifur Úlfarsson og Nökkvi Egilsson gerðu mörkin mikilvægu.
Kórdrengir töpuðu þá sínum öðrum leik á tímabilinu er KV kíkti í heimsókn og skoraði fjögur.
Vængir Júpíters luku tímabilinu á sigri og lentu Reynismenn ekki í vandræðum með botnlið Skallagríms.
Höttur/Huginn 2 - 0 KH
1-0 Ivan Bubalo ('26)
2-0 Ivan Bubalo ('56)
Álftanes 1 - 2 Augnablik
0-1 Þorleifur Úlfarsson ('23)
0-2 Nökkvi Egilsson ('58)
1-2 Kjartan Atli Kjartansson ('91)
Vængir Júpíters 1 - 0 Sindri
1-0 Kolbeinn Kristinsson ('77)
Reynir S. 5 - 0 Skallagrímur
1-0 Elfar Máni Bragason ('17)
2-0 Gauti Þorvarðarson ('24)
3-0 Magnús Magnússon ('37)
4-0 Theodór Guðni Halldórsson ('59)
5-0 Hörður Sveinsson ('90)
Kórdrengir 3 - 4 KV
1-0 Davíð Þór Ásbjörnsson ('19)
1-1 Garðar Ingi Leifsson ('25)
2-1 Alexander Magnússon ('47)
2-2 Björn Axel Guðjónsson ('52)
2-3 Njörður Þórhallsson ('54)
2-4 Arnór Siggeirsson ('57)
3-4 Magnús Þórir Matthíasson ('60, víti)
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir