Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri FH, segir að liðið muni standa heiðursvörð fyrir Íslandsmeistara KR er liðin mætast í Pepsi Max-deildinni á morgun.
KR varð Íslandsmeistari með sætum sigri gegn erkifjendunum í Val á Hlíðarenda um síðustu helgi. Pálmi Rafn Pálmason gerði eina mark leiksins á fjórðu mínútu.
Það eru tvær umferðir eftir af tímabilinu og eru FH-ingar í góðum málum í þriðja sæti deildarinnar, fimm stigum fyrir ofan Stjörnuna og þremur á eftir Blikum.
KR er með níu stiga forystu þegar tvær umferðir eru eftir. Vesturbæingar hafa verið að ná í 2,3 stig á leik í sumar.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir