Fotbolti.net
21.10.12 - 11:08
Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ólafur og Einar Ottó í Selfoss að nýju (Staðfest)

Einar Ottó spilar með Selfossi að nýju næsta sumar.

Einar Ottó spilar með Selfossi að nýju næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Selfoss tilkynnti í gær að félagið hafi gengið frá samningum við tvo leikmenn sem léku áður með liðinu um að spila með þeim að nýju á næsta tímabili.
Þetta eru markvörðurinn Jóhann Ólafur Sigurðsson sem missti af allri síðustu leiktíð vegna meiðsla og miðjumaðurinn Einar Ottó Antonsson sem var í fríi frá fótbolta.

Frá þessu var greint á vefnum Sunnlenska.is en leikmennirnir hafa skipt sköpum fyrir Selfoss því Jóhann Ólafur var valinn besti leikmaðu rliðsins árið 2010 og Einar Ottó var valinn bestur árið 2011 ásamt Babacarr Sarr.

Selfoss féll úr Pepsi-deildinni í haust og leikur því í 1. deildinni að nýju næsta sumar. Gunnar Guðmundsson hefur tekið við þjálfun liðsins af Loga Ólafssyni sem tók við Stjörnunni.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.