Chelsea ætti að fá að vita á næstu 2-3 vikum hvort að félagið losni úr félagaskiptabanni fyrir félagaskiptagluggann í janúar.
Chelsea var dæmt í tveggja félagaskiptagluggabann eftir að hafa brotið reglur með samninga á ungum leikmönnum.
Í sumar gat Chelsea ekki keypt neinn leikmann en félagið fór síðan til Íþróttadómstóls Evrópu með málið.

Málið var skoðað í gær og Íþróttadómstóllinn hefur gefið út að dómur muni liggja fyrir fyrri hlutann í desember.
Chelesa gæti því mögulega losnað úr félagaskiptabanninu fyrir janúar gluggann.
Athugasemdir