Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 21. nóvember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gáfu Lewandowski eftirmynd af Ballon d'Or
Mynd: Getty Images
Verðlaunin Ballon d'Or, besti leikmaður í heimi, verða ekki veitt á þessu ári vegna heimsfaraldursins.

Það er miður fyrir framherjann Robert Lewandowski sem raðar inn mörkum og vinnur langflesta leiki með Bayern Munchen og er umtalað að Lewa myndi vinna verðlaunin ef þau yrðu veitt.

Pólskir stuðningsmenn ákváðu að gleðja Lewa og gáfu honum eftirmynd af verðlaununum í nýliðnu landsleikjahléi.

Bayern vann þrennuna á liðnu tímabili þar sem Lewandowski var besti leikmaður liðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner