sun 21. nóvember 2021 09:50
Brynjar Ingi Erluson
Eiginkona Abidal sækir um skilnað
Eric Abidal er í basli
Eric Abidal er í basli
Mynd: EPA
Hayet Abidal, eiginkona Eric Abidal, staðfesti við franska fjölmiðla í gær að hún hafi formlega sótt um skilnað við eiginmann sinn en hann átti í ástarsambandi með Kheira Hamraoui sem spilar hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Tveir grímuklæddir menn réðust á Hamraoui í Parísarborg í byrjun nóvember og börðu hana með járnröri en hún sár á löppunum og hefur nú þegar misst af tveimur leikjum PSG.

Spjótin beindust fyrst að Aminata Diallo, liðsfélaga Hamraoui, en talið var að hún hefði skipulagt árásina ásamt vini sínum sem situr í fangelsi í Lyon.

Lögreglan sleppti Diallo úr varðhaldi og neitar hún sök í málinu en nú liggur grunur um að Hayet, eiginkona Eric Abidal, hafi skipulagt árásina og gefa nýjustu upplýsingar það í skyn að eitthvað sé til í því.

Hayet er búin að sækja um skilnað við Eric en hann á að hafa viðurkennt fyrir henni að hann hefði haldið við Hamraoui er franska landsliðskonan spilaði með Barcelona.

Lögfræðingar Hayet og Eric hafa ráðlagt skjólstæðingum sínum að ræða ekki við fjölmiðla á meðan málið er til rannsóknar.
Athugasemdir
banner
banner
banner