Fotbolti.net
21.11.26 - 19:06
Ívan Guðjón Baldursson

Arbeloa þorir ekki að tjá sig: Þarf að spara peningana

Arbeloa þorir ekki að tjá sig: Þarf að spara peningana
Canon

Mynd: Fulham

Álvaro Arbeloa þjálfari Fulham var stoltur af frammistöðu lærlinga sinna sem náðu janftefli gegn stórveldi Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Man City heldur áfram að misstíga sig
TENGT EFNI

England: Man City heldur áfram að misstíga sig

Erling Haaland kom boltanum í netið í fyrri hálfleik en ekki dæmt mark vegna umdeilds brots í aðdragandanum. Arbeloa var spurður út í atvikið en neitaði að tjá sig mikið eftir að hafa nýlega fengið sekt fyrir ummæli sín að leikslokum.

„(Bernd) Leno sagði við mig að Haaland hafi brotið á sér, en ég kýs ekki að tjá mig frekar um þetta út af því að síðast þegar ég talaði um dómara þá endaði það ekki vel fyrir mig. Ég þarf að spara peningana mína svo ég kýs að tala bara um leikmennina mína frekar en dómgæsluna," sagði Arbeloa.

„Ég sagði við strákana að við þyrftum hugrekki og mikinn persónuleika til að sigra í dag. Síðast þegar ég kom hingað þá vann ég (með Real Madrid) svo ég hugsaði að kannski gæti ég unnið aftur. Við vissum líka að þeir voru búnir að tapa þremur í röð en þeir eru augljóslega með stórkostlega leikmenn í liðinu sínu og við vissum að við þyrftum að vera upp á okkar allra besta til að eiga möguleika.

„Við spiluðum virkilega vel og hefðum getað unnið leikinn."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.