Fotbolti.net
21.11.26 - 14:33
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Norwich með fimmta sigurinn í röð

Championship: Norwich með fimmta sigurinn í röð
Canon

Mynd: Norwich City

Norwich City er áfram á miklu skriði í ensku B-deildinni, en liðið vann sinn fimmta leik í röð þegar Cardiff City kom í heimsókn á Carrow Road í dag.
Kanarífuglarnir byrjuðu tímabilið ágætlega og unnu þrjá af fyrstu fimm leikjunum áður en fjögurra leikja taphrina tók við.

Norwich náði hins vegar að snúa genginu við um miðjan október og hefur unnið alla sína leiki síðan.

Liðið lenti þó undir gegn Cardiff í dag þegar Yousef Salech braut ísinn fyrir gestina, en heimamenn voru ekki lengi að svara fyrir sig í síðari hálfleiknum.

Paris Maghoma jafnaði metin á 62. mínútu og aðeins sex mínútum síðar kom Mathias Kvistgaarden Norwich yfir.

Daninn var þó nokkuð heppinn með sigurmarkið. Hann fór sjálfur á vítapunktinn en markvörður Cardiff varði spyrnuna. Boltinn hrökk hins vegar beint aftur til Kvistgaarden sem skoraði.

Norwich hefur þar með unnið fimm leiki í röð og er komið upp í níunda sæti deildarinnar með 24 stig, aðeins tveimur stigum frá umspilssæti.

QPR marði á meðan 1-0 sigur á Millwall þökk sé marki Nicolas Madsen undir lok fyrri hálfleiks. QPR situr í sjöunda sæti með 27 stig en Millwall er í 16. sæti með 18 stig.

Southampton vann einnig góðan 2-0 sigur á Derby County og fögnuðu heimamenn þar með nýjum samningi stjórans Tonda Eckert á besta mögulega hátt, en hann framlengdi samning sinn til ársins 2029 á dögunum.

Cyle Larin og Divin Mubama skoruðu mörk Southampton í síðari hálfleiknum og tryggðu liðinu stigin þrjú.

Southampton er í sjötta sæti með 27 stig en Derby situr í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins tíu stig.

Millwall 0 - 1 QPR
0-1 Nicolas Madsen ('45 )
Rautt spjald: Zak Sturge, Millwall ('15)

Norwich 2 - 1 Cardiff City
0-1 Yousef Salech ('48 )
1-1 Paris Maghoma ('62 )
2-1 Mathias Kvistgaarden ('68 )
2-1 Mathias Kvistgaarden ('68 , Misnotað víti)

Southampton 2 - 0 Derby County
1-0 Cyle Larin ('57 )
2-0 Divin Mubama ('90 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Southampton16+1527
7QPR16+727
8Swansea15+426
9Norwich16+924
10West Ham15+1423
11Sheffield Utd15+222
12Portsmouth15+222
13Blackburn15-121
14Cardiff City16-118
15Wrexham15-218
16Millwall16-518
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County16-1710
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.