21.11.26 - 11:45
Brynjar Ingi Erluson
Tjáir sig um ummæli Mudryk - „Get skilið stuðningsmennina“

Mykhailo Mudryk

Mynd: Tottenham

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Mykhailo Mudryk

Mynd: Tottenham
Úkraínski leikmaðurinn Mykhailo Mudryk tjáði sig opinskátt á dögunum um bannið sem hann fékk fyrir brot á lyfjareglum, drauminn um að spila fyrir Arsenal og gagnrýni sína á úkraínska fótboltasambandið, ásamt ýmsu öðru. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, var spurður út í ummæli leikmannsins í gær.

TENGT EFNI
Mudryk nefnir þrjú félög sem höfðu áhuga
Það sem vakti mesta athygli meðal stuðningsmanna Tottenham var að Mudryk viðurkenndi að hann hefði viljað ganga til liðs við Arsenal frekar en Chelsea árið 2023. Ummælin fóru illa í stuðningsmenn Tottenham, enda mikil rígur á milli félaganna, en De Zerbi segist skilja að þau hafi farið fyrir brjóstið á þeim.
„Já, ég get skilið stuðningsmennina, en Mudryk er góður gaur og fótboltamaður. Hann hefur gengið í gegnum mikið vegna þess sem hefur gerst undanfarin ár. Nú þarf hann einfaldlega að sýna gæði sín á vellinum og sýna að hann spili fyrir Tottenham. Þetta er stórt félag, rétt eins og hin félögin, og alls ekki minna,“ sagði De Zerbi á fréttamannafundinum.
Mudryk var dæmdur í fjögurra ára bann eftir að meldóníum, hjartalyf sem getur aukið blóðflæði, þol og endurheimt, greindist í sýni frá honum.
Ákærurnar á hendur honum voru hins vegar felldar niður í sumar og banninu aflétt. Hann sneri þá aftur til Chelsea á undirbúningstímabilinu áður en De Zerbi fékk hann lánaðan til Tottenham.
Mudryk hefur aðeins leikið sextán mínútur með Tottenham, gegn Nottingham Forest í september, en hefur annars verið að glíma við meiðsli.
„Hann vill einbeita sér að vinnunni á æfingasvæðinu og losna undan pressunni. Ég held að hugur hans sé nú alfarið við fótboltann. Það er stórt tækifæri fyrir hann að spila með okkur því Tottenham er stórt félag. Hann þekkir þjálfarann vel og veit hvernig við viljum spila.“
„Hann veit að ég mun treysta honum og gefa honum tækifæri til að sýna hvað í honum býr. Nú þarf hann að beina einbeitingunni í rétta átt og ég veit að hann leggur gríðarlega hart að sér til að jafna sig og komast aftur á völlinn.“
Tottenham mætir Ipswich klukkan 15:00 í dag en Mudryk verður ekki með.
„Nei hann verður ekki með. Planið var að hann myndi spila gegn Ipswich eða Sunderland, eða að minnsta kosti vera til taks. Hann fann ekki fyrir verkjum en leið samt ekki nógu vel. Hann þurfti því tvær vikur í viðbót og við tökum stöðuna skref fyrir skref.“
De Zerbi var einnig spurður hvort Tottenham gæti rift lánssamningnum í janúar, en hann segist ekkert vera að velta þeim möguleika fyrir sér.
„Það er ekki mín deild. Ég er þjálfarinn og nú þurfum við að hjálpa honum að komast aftur á völlinn á besta mögulega hátt. Ég trúi því að hann verði okkur mjög mikilvægur því hann hefur sérstaka eiginleika og býr yfir miklum gæðum,“ sagði De Zerbi ennfremur.