21.11.26 - 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Lúkas hélt hreinu í stórsigri - Viking fór illa að ráði sínu

Lúkas hélt hreinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lúkas hélt hreinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Lúkas Petersson, markvörður U21 árs landsliðsins, hélt hreinu þegar varalið Hoffenheim vann stórglæsilegan 4-0 sigur á Preussen Munster í þýsku C-deildinni í dag.
Hinn stóri og stæðilegi markvörður náði að hrista af sér vonbrigðin frá því fyrr í vikunni þegar U21 árs landsliðið tapaði grátlega fyrir Grikkjum í umspili um sæti á EM.
Lúkas var mættur aftur á milli stanganna hjá varaliði Hoffenheim, sem er komið upp í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig eftir fjórtán leiki.
Það er frábær árangur hjá varaliðinu, en Lúkas er einnig þriðji markvörður aðalliðs Hoffenheim.
Amin Cosic kom inn af bekknum hjá Viking sem tapaði 3-2 fyrir Tromsö í norsku úrvalsdeildinni. Tapið var þungt högg fyrir Viking, sem er þremur stigum frá toppnum þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.
Logi Tómasson lék allan leikinn fyrir Samsunspor sem tapaði 2-1 fyrir Tyrklandsmeisturum Galatasaray í tyrknesku deildinni í dag.
Samsunspor situr í næstneðsta sæti deildarinnar með sjö stig.