Fotbolti.net
21.11.26 - 17:25
Brynjar Ingi Erluson

Sindri varði vítaspyrnu er Vasalund bjargaði sér frá falli

Sindri og Vasalund verða áfram í C-deildinni

Sindri og Vasalund verða áfram í C-deildinni

Canon

Mynd: Vasalund

Sindri Kristinn Ólafsson og félagar í Vasalund tryggðu sér áframhaldandi sæti í sænsku C-deildinni með öðrum sigri sínum á Enskede í umspilinu í dag.
Vasalund hafnaði í umspilssæti í fallbaráttunni í norðurriðli sænsku C-deildarinnar og mætti því Enskede, sem hafði endað í öðru sæti í sínum riðli í D-deildinni.

Vasalund vann fyrri leikinn 2-1 og tryggði sér áframhaldandi sæti í C-deildinni með 1-0 sigri í síðari leiknum í dag.

Sindri, sem gekk til liðs við Vasalund frá Keflavík fyrir tímabilið, var á sínum stað á milli stanganna og reyndist sínum mönnum heldur betur mikilvægur. Hann varði vítaspyrnu í stöðunni 1-0 og kom í veg fyrir að Enskede jafnaði metin.

Sindri var því ein af hetjum dagsins og var honum sungið til heiðurs í búningsklefanum eftir leik.

Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af bekknum hjá Malmö sem gerði 1-1 jafntefli við sænsku meistarana í Mjällby. Malmö situr í sjöunda sæti með 42 stig.

Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn fyrir Polonia Warszawa sem gerði 1-1 jafntefli við Stal Mielec í pólsku B-deildinni. Polonia er á toppi deildarinnar með 26 stig.

Adam Ingi Benediktsson hélt síðan hreinu þegar AB vann öruggan 3-0 sigur á Esbjerg í dönsku B-deildinni. AB er í fjórða sæti með 24 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.