Fotbolti.net
21.11.26 - 11:34
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Man City og Fulham: Bouaddi á miðjunni

Bouaddi kemur inn fyrir Enzo

Bouaddi kemur inn fyrir Enzo

Canon

Mynd: EPA

Manchester City tekur á móti Fulham í fyrsta leik 11. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 12:30 á Etihad-leikvanginum í dag.
City hefur tapað þremur deildarleikjum í röð og má vart við öðru tapi ef liðið ætlar sér að halda í við Arsenal í toppbaráttunni.

City situr sem stendur í þriðja sæti með 21 stig, sex stigum á eftir Arsenal sem trónir á toppnum.

Þrjár breytingar eru á byrjunarliði City þar sem Ayyoub Bouaddi, Phil Foden og Nico O'Reilly koma inn fyrir Enzo Fernandez, Josko Gvardiol og Rayan Cherki, sem setjast á bekkinn.

Fulham gerir sömuleiðis þrjár breytingar á sínu byrjunarliði. Rodrigo Muniz, Kenny Tete og Ryan Sessegnon koma inn í stað Timothy Castagne, Antonee Robinson og Gonzalo Garcia.

Man City: Donnarumma; Khusanov, Rúben Dias, Guéhi, O'Reilly; Anderson, Bouaddi; Foden, Ndiaye, Doku; Haaland

Fulham: Leno; Tete, Bassey, Affengruber, Sessegnon; King, Charles, Berge; Muniz, Iwobi, Bobb.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.