Fotbolti.net
21.11.26 - 14:50
Brynjar Ingi Erluson

Bundu enda á tuttugu leikja taphrinu

Fulham náði loksins í stig gegn Man City

Fulham náði loksins í stig gegn Man City

Canon

Mynd: EPA

Fulham batt enda á tuttugu leikja taphrinu gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Man City heldur áfram að misstíga sig
TENGT EFNI

England: Man City heldur áfram að misstíga sig

Rodrigo Muniz skoraði eina mark Fulham í 1-1 jafntefli gegn Man City á Etihad-leikvanginum í dag.

Heimamenn voru hrikalega slappir í fyrri hálfleik en skömminni skárri í þeim síðari og náðu að bjarga stigi. Það verður þó að teljast mikil vonbrigði fyrir City-menn, sem hafa nú farið fjóra deildarleiki í röð án sigurs.

Úrslitin voru hins vegar frábær fyrir Fulham, sem náði þar með sínu fyrsta stigi gegn City í deildinni síðan árið 2011.

Fulham hafði síðast náð stigi gegn City í 2-2 jafntefli á Craven Cottage í september 2011, en liðin gerðu jafntefli í báðum viðureignum sínum það tímabil.


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Fulham11-211
15Ipswich Town10-511
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.