Fotbolti.net
21.11.26 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Franska deildin

PSG þarf nýjan sóknarmann eftir meiðsli Doué

PSG þarf nýjan sóknarmann eftir meiðsli Doué
Canon

Mynd: EPA

Franska risaveldið Paris Saint-Germain er í meiðslavandræðum í sóknarlínunni sinni.
Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia er frá keppni út tímabilið eftir krossbandsslit og þá hafa Maghnes Akliouche og Ousmane Dembélé einnig verið að glíma við lítilvægleg meiðslavandræði upp á síðkastið en virðast vera búnir að jafna sig.

PSG er að spila við Nice í frönsku deildinni þessa stundina og snéri Désiré Doué illa upp á hnéð á sér og þurfti að vera borinn af velli.

Doué er 21 árs gamall og litu meiðslin mjög illa út. Það er því mögulegt að hann verði frá keppni næstu mánuðina og þá þykir ljóst að ríkjandi Evrópumeistarar, sem hafa unnið Meistaradeild Evrópu síðustu tvö ár í röð, þurfi að kaupa inn nýjan sóknarleikmann í janúarglugganum.

Ferran Torres, Senny Mayulu og Mika Godts eru heilir heilsu ásamt táningunum Quentin Ndjantou og Dro Fernández.


PSG þarf nýjan sóknarmann eftir meiðsli Doué
Canon

Mynd: EPA

Ligue 1 - karlar

#LiðLmunStig
1PSG11+1426
2Lille10+721
3Paris FC10+720
4Marseille10+818
5Lyon10+617
6Nice11+117
7Mónakó10+216
8Rennes10016
9Brest10+615
10Lorient10+115
11Lens10+213
12Toulouse10+113
13Troyes11-811
14Strasbourg10-410
15Auxerre10-1110
16Le Mans10-78
17Angers10-108
18Le Havre11-152
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.